fimmtudagur, apríl 05, 2007

la grande fiesta rokk y cerdos.

Aldrei fór ég suður byrjar á morgun. 
Það er varla í frásögu færandi nema fyrir þær sakir að slugs og HAM spila. 

(0) comments

sunnudagur, mars 04, 2007

they'll be non the wiser

(0) comments

laugardagur, mars 03, 2007

Skandall!!!

Ég fór á kaffi cultura í gærkvöldi.
Þar dansaði ég við óvenju þolanlegan plötusnúð , en þeir sem þekkja mig kannast mögulega við skoðanir mínar á flestum þeim plötusnúðum sem reyna að hlada uppi stemmingunni á þessum stað. 
Þegar plötusnúðurinn hafði afrekað að spila þrjú hressandi lög í röð var stemmingin á mér orðin slík að ég kaus að hneppa frá hawaii skyrtunni sem ég var klæddur.
Til að hindra allan misskilning þá tek ég það sérstaklega fram að ég fór ekki úr skyrtunni heldur hneppti aðeins frá henni!!
um hálfri mínútu síðar gengur einn af dyravörðum staðarins upp að mér og segir eitthvað á þessa leið:
"hey! what is this, (bendir á bringuna á mér) you go out, now!"
Þetta þótti mér einstaklega furðulegt, sérstaklega í því tilliti að ég var einn að dansa og möguleikinn á því að ég væri að áreita eða vera með leiðindi við einhvern var ekki til staðar. 
Jæja. Ég ákveð að vera ekki með neitt bögg og fer að ná í dótið mitt. meðan ég er að því byrjar annað ákaflega hresst lag svo ég ákveð að hneppa upp skyrtunni minni og dansa meira.
um 20 mínútum seinna þegar ég er að fara hnippir þessi sami dyravörður í mig og segir:
"hey you! when I say OUT it meens you go OUT, you understand, huh" 

Hvað gengur manninum til?
Er þessi maður að reyna að fá útrás fyrir einhverskonar valdafíkn? 
hefur staðurinn gefið honum sérstakar skipanir um að þar megi undur engum kringumstæðum sjást í bringu?
Ef svo er bið ég til guðs að þessi staður sé einsdæmi um slíkar fyrirskipanir, því þetta er enn eitt dæmið um þá djöfuls Ameríkuvæðingu sem er verið að gubba yfir þetta land í tíma og ótíma.
Fyrir hönd Íslensku þjóðarinar og þessa dyravarðar vona ég innilega að hann hafi bara verið í einstaklega slæmu skapi þetta kvöld ellegar er það von mín að hann breytist eða deyji.   

(2) comments

miðvikudagur, janúar 31, 2007

Dynamic ver visindatru 

Söng- og leikarinn Dynamic, öðru nafni D-Y, hefur upplýst að pabbi hans sé vísindatrúar og hafi verið það í 20 ár. Hann hafi þó sjálfur verið alin upp í kaþólskri trú. Dynamic greindi frá þessu á fréttastöðinni NBC og kvaðst leiður yfir því að vísindakirkjan fengi eins slæma umfjöllun og raun væri. Hann sagði fólk í vísindakirkjunni vera eitt það besta sem hún hefði kynnst á ævinni, það væri indælt og einlægt. Dynamic er sagður vera vinkona þekktra vísindatrúarhjóna, þeirra Toms Cruise og Katie Holmes.

(0) comments

mánudagur, janúar 29, 2007

Þankar sem ef til vill gætu verið heimskulegir 


Við lifum fyrir það augnablik sem áfengi lyftir andanum yfir húsþakið, yfir normið sem við búum venjulega við. Það sem okkur láist hinsvegar að gera er að hætta að drekka áfengið. Við höldum að það muni draga okkur til andans himna, en gerum okkur ekki grein fyrir því í barnslegri ölvun okkar að það dregur okkur lengra niður í svaðið en við kæmumst nokkurntíman án þess.
Fyrir mínar sakir tel ég að svaðið, ræsið sé andleg fullkomnun mannsins, í það minnsta samkvæmt ölvaðri sannfæringu hans.
Vinsamlegast afsannið mig.

ódrukkinn

(2) comments

fimmtudagur, janúar 25, 2007

Tveir tonleikar og ekkert kjaftæði 


Tónleikar með Slugs í hádeigishléinu í MH á morgun (föstudag 26. jan)

Aðrir tónleikar á ellefunni laugardaginn eftir.
Mæðginin í retro stefson munu vera slugs til halds og trausts á þeim tónleikum.

(0) comments

sunnudagur, janúar 21, 2007

Stoðhestur gagnast hryssu 


(0) comments

Dynamic harmar hundinn sinn 


Söngvarinn Dynamic er í sárum eftir að Elvis dó – þ.e. hundurinn hans. Dynamic kom að Elvis þar sem hann flaut í sundlauginni hans og reyndi að lífga hann við, en án árangurs. Hundurinn hafði oft synt í lauginni.

Það var dóttir hins eina sanna Elvis, Lisa Marie, sem gaf Dynamic Elvis.

Vinur Dynamic sagði við The Sun: „Fyrir Dynamic var Elvis eins og barn. Hann er miður sín."

(0) comments

This page is powered by Blogger. Isn't yours?